|
Könnun
Eigum við að halda síðunni lifandi?
Nei bara að hætta
0 atkvæði
Já það væri gaman
2 atkvæði
Alls ekki hætta:(
2 atkvæði
Alveg sama
0 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 4
|
25.01.2009 20:57:22 / sexysexy
Það er orðið ansi langt síðan það var bloggað seinast enda erum við meira inná facebook núna og fylgjumst bara með hvor annari þar  Hins vegar er eiginlega alveg synd að fara að leggja síðuna niður þar sem hún er búin að vera starfandi síðan 2004. Tinna okkar var hérna á klakanum um jólin og skemmtum við okkur alveg konunglega, tíminn er samt alltaf svo fljótur að líða, maður þurfti að kveðja hana allt of fljótt fannst okkur. Skólinn er byrjaður á fullu hjá mér og er ég að reyna að koma með í gírinn fyrir lokaverkefni, það gengur ansi hægt. Ég er í skólanum 2-3 daga í viku og þar á milli er maður að vinna og svo að reyna að gera lokaverkefni. Tinna sagði okkur um jólin að hún myndi ekki vera á klakanum næsta sumar nema kannski í 2 vikur því hún verður að taka mastersnámið einnig yfir sumarið. Við stelpurnar vorum að spá, þar sem hún stoppar svo stutt að halda risa 25 ára afmælispartý eins og við gerðum 2004 þegar við urðum tvítugar. Þá ná allir að hittast og vonandi verðum jafn mikið stuð og seinast. Hvernig líst fólki á þessa hugmynd ? Ég ætla nú bara að hafa þetta stutt en ég vona að Tinna geti bloggað næst því það er alltaf eitthvað gaman að gerast í ALABAMA  Kveðja Hrund
»
29.05.2008 00:00:17 / sexysexy
»
26.04.2008 22:18:02 / sexysexy
Hellúú krakkar mínir Sorry hvað ég er búin að vera ódugleg að skrifa inn á þessa blessuðu síðu okkar... ég verð að viðurkenna að ég er meira farin að nota Facebook til þess að vera í sambandi við vini og slúðra og heyra slúður. En ég vil samt ekki að þessi síða deyji því annars deyja margir aðdáðendur með henni...og það yrði ómögulegt  Ég vil ekki upplifa það sama og Take That hljómsveitin hahaha Annars er allt gott að frétta af mér eins og alltaf. Það er búið að vera mikið og ekkert að gerast hérna í Alabama. Sólin er samt farin að láta sjá sig á hverjum degi og hitinn er alveg að fara með mann. Ég á erfitt með að sitja inni og læra...maður vill bara vera úti og maxa tanið. Ég er samt með góðar fréttir. Ég er búin að vera að undirbúa mig fyrir að taka próf sem heitir MAT og er próf til þess að komast inn í masterinn í International Relations. Ég tók það þann 18. apríl síðastliðinn og náði, sem þýðir að ég komst inn  (ég á reyndar eftir að fá opinbera staðfestingu en ég er búin að heyra að ég komst inn) Þetta er mjög skemmtilegt fyrir mig, þar sem ég vissi ekki alveg hvað ég ætlaði að gera á næsta ári. Þar sem ég náði prófinu þá ætla ég að skella mér í þetta. Ég hugsa nú samt stundum, hvað er ég að gera?...ég er komin með smá skólaleiða og fara beint í masterinn núna. Þetta verður bara 1 1/2 ár ca. og ég verð í góðum málum þegar ég er búin með þetta....vonandi haha! Bara drífa þetta af og nota fótboltann til þess að hjálpa mér að borga þetta. Ég og David verðum þá saman í Montgomery aðeins lengur... Svo er bara minna en mánuður í útskrift...að hugsa sér. Þetta er búið að vera svo fljótt að líða, mér finnst eins og ég kom í gær! Mamma kemur á föstudaginn...jess sko! Ég hlakka svo til að fá mömmu og sýna henni sveitina í suðrinu, þar sem ég er búin að eiga heima í næstum 3 ár! Hún verður viðstödd útskriftina sem er bara gaman. En svo ætlum við að ferðast til Tennessee, heim til Davids og gista þar í allavegana eina nótt áður en við förum til Boston. Við förum til Boston þriðjudaginn 13. maí og verðum til 15. maí. Þar á maður eftir að taka smá kaupæði...ég meina, HM og svona ....búðir sem eru ekki í sveitinni! Ég hlakka alveg rosalega til að koma heim. David kemur með og það verður nóg að gera hjá okkur fyrstu vikurnar og líklegast allt sumar! Við komum föstudaginn 16.maí og útskriftarveislan verður á laugardeginum 17.maí svo David á eftir að fá alla fjölskylduna og vini beint í æð um leið og hann lendir á Íslandi. Hann er svo sætur og góður í því að það verður bara gaman. Svo verður Eurovision helgina þar á eftir, þar sem hann á eftir að fá klikkaða Íslendinga sem eru að hvetja eitthvað frekar halló lag áfram í söngvakeppni beint í æð hahaha.... Það er bara eins gott að hann vilji ekki fara heim bara eftir fyrstu 2 vikurnar haha  Neinei...þetta verður bara gaman! En ég ætti að halda áfram að læra svo það verður pottþétt útskrift haha. Ég er að fara í 2 lokapróf í næstu viku sem ég fékk að flýta því að mamma er að koma til mín..jess! En svo verður þetta ekkert mál  Ég hlakka til að sjá ykkur...ég hlakka samt mest til þess að sjá Önnu og Hrund!! Það verður yndislegt! Kysskyss Tinnan ykkar
»
07.04.2008 22:32:54 / sexysexy
Það er sko hellingur búin að gerast síðan ég skrifaði seinast, enda endalaust langt síðan það var  . Við Jónsi vorum að flytja núna á föstudaginn, erum orðin Kópavogsbúar. Við fluttum í 3 herbergja íbúð í Lautasmára í Kópavogi, rosalega fín íbúð, við ákváðum að taka 3 herbergja því Hrafn litli bróðir hans Jónsa ætlar að leigja hjá okkur í haust, hann er að fara að byrja í Háskólanum í Reykjavík. Hann verður orðinn vel lærður eftir veturinn  . Síðan snemma á laugardaginn keyrðum við í Grímsnesið og fluttum allt draslið hennar múttu. Tveir fluttningar á einum sólarhring, geri aðrir betur  Við Jónsi fengum sem beur fer gott fólk til að hjálpa okkur að flytja, án þeirra hefðum við aldrei getað þetta. Við vorum svo dauð á sunnudaginn, við reyndum að koma okkur aðeins fyrir en það er samt fullt eftir. Ég ætla nú að reyna að stressa mig ekkert of mikið á því, maður hefur víst nægan tíma Svo er aðal, það er stelpuferðin til Köben. Ég, Anna Lind og Ástdís drifum okkur í 5 daga til Köben að hitta hana Siggu okkar. Ferðin var frábær í alla staði. Við komum á fimmtudegi og það kvöld var nú bara tekið rólega, en við gátum blaðrað til 4 þrátt fyrir að byrja að væla um þreytu um tíuleytið. Við fórum að sjoppa í verslunarmiðstöðinni Fields á föstudegiunum. Síðan var Sigga búin að panta borð á geðveikum veitngastað sem heitir Customhouse á föstudagskvöldið. Þar var tekið á móti okkur eins og drottningum með flæðandi kampavíni og koktelum. Við fengum geðveikan mat og flotta þjóna  Síðan fórum við á hótelið sem Sigga vinnur á Hótel 27 og þar fékk Sigga kampavínsflösku þar sem hún átti afmæli daginn eftir. Síðan fórum við heim einhvern tímann seint, seint. Við vorum nú frekar þreyttar á laugardeginum, fórum aðeins á Strikið, nenntum eignilega ekkert að versla, enda skít þreyttar. Um kvöldið hélt Sigga síðan uppá afmælið sitt. Það var ógeðslega gaman, fullt af fólki og slatti af Kvennskælingum, Kommi og Kristín komu, Hanna Lilja, Halla kom frá Árhúsum og Davíð og Gerður komu líka alla leið frá Árhúsum. Partýið var langt frammá nótt og svo var haldið í bæinn um 4. Það var farið á einhvern dansstað og við stelpurnar sýndum þessum Dönum hvernig á að snúa sér á gólfinu. Við fórum síðan að sofa um hálf níu, langt síðan það hefur gerst  Sunnudagurinn var notaður í leti, við vöknuðum nú ekki fyrr en um 3 og þá var smá étið og síðan klesstum við okkur í sófann og töluðum saman til 4 um nóttina. Við vorum helvíti sprækar á mánudagsmorgun, fórum á Strikið og versluðum fyrir nokkrar krónur. Við misstum okkur nú ekkert í búðunum enda danska krónan ekki alveg að gera sig þessa dagana. Seinni partinn héldum við síðan út á flugvöll með tár í augunum enda var þetta alveg frábær ferð. Ég varð að stela þessu að síðunni hennar Siggu, þetta lýsir helginni í fáum en góðum orðum J Orð helgarinnar: ALLS EKKI vs. Feita Feitudóttir Orð sem aldrei verður sagt aftur: Æ Æ Æ Lag helgarinnar: B I B L Í A ..... Takk innilega Sigga og Andri fyrir allt.
Ég fékk síðan úr lokaprófinu mínu í aðferðafræði í dag, ég fór í prófið daginn fyrir Köbenferðina. Prófið gekk bara helvíti vel, ég er bara frekar sáttJ Kveðja Hrund Kópavogsmær P.S. Tinna mín þú verður að fara að skrifa, ég hef ekki heyrt í þér svo lengi að það er alveg agalegt. Sakna þín sætaJ
Ég kann ekki að setja inn myndir síðan þetta breyttist allt á síðunni okkar en ég setti inn myndir frá ferðinni inná: http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=19434879&uid=8414901&members=1
»
07.02.2008 04:11:13 / sexysexy
Saelar… langt sidan sidast! Tad er allt fint ad fretta af mer, mikid buid ad vera ad gerast sidan eg skrifadi sidast…ekki skritid tvi ad tad er allt of langt sidan eg skrifadi sidast! Allavegana, ta kom eg heim til Islands fyrir jol (eftir 2ja solarhringa ferdalag) en enginn nennir ad lesa ta sogu, tvi eg er buin ad segja hana svo oft. Svo for eg til Parisar med mommu minni og var tar yfir jol og aramot… Svo for eg aftur til Montgomery, Home Sweet Alabama, 11. januar. Tad var gott ferdalag til baka og a flugvellinum i Charlotte hittum vid AB, Aliciu Keys (hun bad ad heilsa) En eg var mjog stuttan tima heima svo ykt oheppnir, teir sem sau mig ekki tann tima sem eg var heima… Tad var yndislegt ad vera i Paris med mommu. Vid vorum bara tvaer, gerdum tad sem vid vildum og tegar vid vildum. Vid versludum smaaa, chilludum a kaffihusum, skodudum allt sem vid hofum adur skodad, lobbudum endalaust og bordudum godan mat. Tad var ekkert sma skemmtilegt, notalegt og frabaert hja okkur. Reyndar vard eg soldid mikid veik (flensu, hita, svitakast og gubbupest…name it!) en eg let tad ekki stoppa mig ganga um gotur Parisar! Svo beid min David saetasti i Alabama… tegar eg kom var hann ad keppa og eg bad bara domarann um kissing break tvi tad var ordid allt of langt sidan eg fekk kossa sidast. Domaranum fannst tad bara allt i lagi og fekk eg einn blautan! Min var satt haha… 23. januar 2008 var merkisdagur tvi ad ta kom Hildur til min i heimsokn. Ohh tad var svoo skemmtilegt ad hafa hana. Vid gerdum margt og mikid. Vid forum i dyragardinn i Montgomery, forum bio og saum Juno (yndisleg mynd), forum i 80’s afmaelisparty hja Onnu Beggu (sem er ordin 24 ara jaeks), forum til Birmingham ad versla og a Cheese Cake factory (namminamm), forum i keilu (og eg rustadi David og Hildi) og vid forum a Coca Cola safnid i A-Town (tar sem vid fengum ad smakka allt gos i heiminum!...sem var vidbjodur) Eg og Hildur erum alltaf med eitthvad akvedid tema i heimsoknum hennar til min. I Paris heimsokninni hennar Hildar tegar eg atti heima tar var temad Scooter, Mario, Paul og Cold Mountain. I Alabamaferdinni var Juno, “you and me together” Alicia Keys, Smoothie King, Coca Puffs og 80’s… 31.januar 2008 var svo sorgardagur tegar Hildur for… Takk innilega fyrir heimsoknina elsku besta Hildur… nu er engin Hildur tegar eg vakna a morgnanna ne tegar eg er ad borda Coca Puffs ohhh… Jaeja, eg aetla ekki ad hafa tetta allt of langt tannig ad folk haettir ad lesa I midjum lestri…en eg setti inn myndir…jejjj, af mer og Hildi og mer og David og mer og einhverjum krokkum herna og mer og einhverjum odrum og svo bara mer. Ahugasamir mega endilega kikja. Taer eru undir Hildur i heimsokn… svo setti eg inn eitt annad album( jol ‘08 ) med mjog faum myndum i… en tad eru nokkrar myndir af mer og yndislegu systir minni og mer og Sogu bestustu fraenku minni og mer. Kysskyss og sma knusknus og sma bangbang (bara fyrir ta sem eru saetir samt) Tinnan ykkar. PS. Eg vil taka tad fram ad Hildur skrifadi skemmtilega faerslu a sina sidu (Hildur studbolti) og setti inn myndir. Einhverjar myndir i minu albumi eru myndir sem Hildur tok, en eg borgadi henni fyrir syningarrettinn. Hildar myndir eru merkar H.H.S. nidri i haegra horninu a myndunum.Takk fyrir, njotid.
»
02.02.2008 02:04:38 / sexysexy
Maður hefur engan tíma til að vera í skóla heldur gerir ekkert annað en að skjótast til útlanda. Ég skellti mér til Danmerkur á miðvikudaginn í seinustu viku til að vera við útskriftina hans Jónsa. Ég og Binna flugum út saman til að verða vitna af því þegar kallarnir okkar yrðu fræðingar Jónsi hitti mig í Köben og við vorum í 2 daga hjá Siggu, það var æðislega notalegt. Stoppið var ekki langt í þetta skiptið en við stelpurnar (ég, Anna Lind og Ástdís) erum búnar að kaupa ferð út til Siggu í lok mars. Svo það er ekki langt í þriðju utanlandsferðina hja mér á árinu Á föstudeginum fór ég síðan með lest til Odense og um kvöldið borðuðum við Jónsi með grúppunni hans á frábærum kínastað sem við höfum oft farið á. Útskriftin var síðan alltof snemma á laugardagsmorguninn eða klukkan 10, ég skil ekki afhverju í ósköpunum þeir hafa þetta svona snemma. Það var allavega frekar erfitt að þurfa að dressa sig upp rétt fyrir 9. Það var ótrúlega gaman á útskriftinni og síðan héldum við uppá allt saman með því að fara út af borða um kvöldið með Orra og Binnu. Á sunnudeginum fórum við svo til Köben og horfðum á úrslitaleikinn í handbolta á brjáluðum sportbar á lestarstöðinni, þar var ótrúleg stemning og gaman að fá að upplifa sigurinn með mjög hamingjusömum Dönum Eftir leik var haldið út á flugvöll og komið heim í snjóinn, æðinslegt Nú er svo bara skóli á fullu, alltof mikið að gera. Ég setti inn myndir af útskriftinni inná útskrift Jónsi
Kveðja Hrund ferðalangur Skóli hvað......
»
22.01.2008 18:50:03 / sexysexy
Það var æðinslega gaman með múttu á Tenerife. Við fórum út 2.janúar og komum heim 16.janúar. Veðrið var æðinslegt allan tímann, smá ský stundum en alltaf um 20 stiga hiti. Við vorum duglegar að liggja í sólbaði og slaka á enda var það tilgangurinn með þessari ferð Mamma var 60 ára 5.janúar og þá fórum við voðalega fínt út að borða, fengum okkur flottar steikur og allt með því, síðan fórum við á hótelið okkar í inniskóna og sloppana og láum í hláturskasti í smá myndatöku. Daginn eftir fórum við aftur út að borða á veitingastað sem heitir Molino Blanco með fólki sem við kynntumst í flugvélinni. Við mamma spiluðum rommí alla leiðinni út og við hliðina á okkur sat kona sem spurði síðan í seinna hluta flugsins þegar við vorum búnar að vera að tala saman í nokkurn tíma hvort hún mætti ekki spila með. Þá ákváðum við að spila manna og eftir það var ákveðið að fara út að borða saman. Það var ótrúlega gaman að fara með þeim og að sjálfsögðu er alltaf frábært að kynnast nýju og skemmtilegu fólki Við fórum einn sunnudaginn í skoðunarferð yfir í eyjuna La Gomera, við tókum ferju yfir ásamt fullri rútu af Íslendingum. Sú ferð var alveg ótrúlega skemmtileg. Jörundur gömul eftirherma (var mikill skemmtikraftur fyrir mína tíð ) var fararstjórinn okkar og maður var að pissa á sig úr hlátri allan tímann. Þar borðuðum við og keyrðum í kringum eyjuna sem er ótrúlega gróðurmikil og allt öðruvísi en Tenerife.
 Það var sko ekki mikið verslað, það eina sem var til kostaði annað hvort 100.000 kr eða 100 kr, það var eiginlega ekkert þarna á milli. Búðirnar voru margar ógeðslega flottar og seldu ekkert nema rándýra merkjavöru eins og Armani og Gucci. Ég og mamma skoðuðum eitt hálsmenn sem mömmu leist ágætlega á, við fórum inní búðina til að spyrja hvað það kostaði þá tók sölumaðurinn upp hanska og setti á sig áður en hann tók það út. 630.000 kr íslenskar takk fyrir pent. Við ákváðum að hugsa málið aðeins Ferðin var frábær í alla staði og hefðum við alveg verið til í að vera lengur. Lendinginn var frekar hrikaleg, ég ásamt fleirum í vélinni öskruðum aðeins þegar við skeltumst upp og niður. Síðan er ég bara á leiðinin til Köben á morgun, það er engin tími til að vera í skóla núna Jónsi minn var að klára skólann í dag, fékk góða einkunn fyrir lokaverkefnið sitt. Við ætlum að vera hjá Siggu í Köben í 2 daga og fara svo til Odense og vera við útskriftina. Kem með Dammó ferðasögu og myndir eftir ferðina. Ég setti inn fullt af myndum frá Tenerife inná Tenerife 08
»
09.01.2008 14:00:44 / sexysexy
Þá eru jólin liðin og ég verð bara að segja að ég er frekar fegin að þessi herlegheit eru búin!! Jólastressið var í hámarki þetta árið: klára próf, vinna eins og maðkur og kremja inn jólainnkaupum þess á milli. Eftir 24. biðu svo jólaboðin í röðum öllum til mikillar ánægju Fólk tróð sig út af hamborgarahrygg, skinku, brúnuðum kartöflum og jólaís og skoluðu öllu niður með miklu jólaöli. (Samansafn af öllu því sem ég má ekki borða!!!) Ég ákvað að taka nýja árið með stæl og fékk eitt stykki nýrnasýkingu og 40 stiga hita þann 2.jan og var plantað inn á bráðamóttökuna Þetta er samt allt að koma og þá tekur skólinn og vinnan aftur við. Hrund fór til Tenerife 2.janúar og heyrst hefur að þær mæðgur séu í fullri vinnu að vörka tanið Tinnilíus fór með mömmu sinni til Parísar yfir hátíðarnar og bíðum við spennt eftir ferðasöguJ Spurning: Strengdiru einhver áramótaheit??? Kv. Anna Lind
»
28.12.2007 01:56:21 / sexysexy
Gleðileg jól öll sömul og takk fyrir allt gamalt og gott  Jólakveðja Sexybitches
»
30.11.2007 23:33:46 / sexysexy
Skólinn er búin og prófin að byrja. Það er búið að vera svakalega mikið að gera í skólanum uppá síðkastið. Kennarar eru snillingar í því að setja á verkefni í seinustu vikunni, alveg óþolandi. Annars þarf maður bara að fara að drullast til að læra fyrir prófin. Ég fer í tvö próf, eitt í kennslu- og þjálffræði og svo eitt svakalegt í lífeðlisfræði. Glimmer hópurinn kom saman á ný á akademíudaginn sem var hjá okkur um daginn. Dagurinn heppnaðist vel en það mættu samt ekki nógu margir frá akademíunni og við vorum frekar svekt yfir því. Gillznegger ásamt félaga mætti seint eins og hann reyndar gerði líka í fyrra. Hann vil greinilega láta taka eftir sér. Hann var svo of góður til að horfa á skemmtiatriðin og ég tek það fram að allir horfðu á þau nema hann og einn af hans brúnu félögum. Það er nú alveg hægt að æla á þetta lið, ég segji nú bara ekki meira. Annars gengur allt sinn vanagang hérna í vesturbænum. Jónsi er að fara út eldsnemma í fyrramálið til Dammó og verður þar þangað til 18.des. Hann er að fara klára lokaritgerðina sína. Ég er búin að vera veik núna í næstum 3 vikur og er orðin nett pirruð á því. Heimilislæknirinn veit ekkert hvað er að, gaf mér sýklalyf sem ég er búin með núna og mér er svo sannarlega ekki batnað. Þessi veikindi mín eru sagan endalausa. Ég setti inn myndir af glimmer hópnum inná Glimmer 07. Annars langar mig bara að segja til þeirra sem eru í prófalestri, gangi ykkur rosalega vel. Enda hérna með einni mynd af glimmerhópnum um daginn, alltaf jafn smart Bið að heilsa í bili, kveðja Hrund
»
13.11.2007 23:57:39 / sexysexy
Þá er líffærafræðiprófið á enda og það gekk bara ágætlega. Ég dró bak og búk hefði nú frekar viljað massa mjöðmina epa öxl en maður fær víst ekki alltaf það sem maður vill Annars var líka Halloween ball á Laugarvatni í seinustu viku, svaka stuð. Búningarnir voru nú ekki alveg jafn flottir og hjá Tinnu og félögum í Bama en fólkið lagði sig fram og það var það sem skipti máli Ég ætlaði ekki að finna neitt, langaði að vera prinsessa eða senjoríta en var ekki alveg að finna búninginn svo ég endaði sem einhvers konar sígaunakona, en það heppnaðist bara aldeilis vel. Síðan er allt á fullu í skólanum núna, við erum að fara í mjólkursýrutest og hámarkssúrefnisupptökutest á fimmtudaginn. Ég er ein af tilraunadýrunum í mínum hóp, ég á að hjóla undir hámarksálagi í X margar sekúndur, það verður örugglega mikið stuð. Ég vona bara að ég æli ekki eins og ég gerði í 10 km poweraide hlaupinu seinasta fimmtudag Íþróttaakademían er svo að koma í heimsókn til okkar á vatnið á föstudaginn. Það er búið að skipuleggja heljarinnar dagskrá, það verður keppt í körfubolta, stígvélakasti og einhvers konar boðhlaupum. Síðan verður haldið í sal skólans og borðað og báðir skólarnir koma með 3 skemmtiatriði, eitt frá hverju ári. Danshópurinn Glimmer ætlar að koma saman á ný vegna tilefnisins og trilla mannskapinn, ég tek myndir og set inn Hérna er ein góð af glimmer hópnum eftir seinasta show þeirra Annars var ég að setja inn myndir af grímuballinu okkar inná Halloweenball á vatninu Ég, Addi og Hjördís Ósk á ballinu Heyrumst, Hrund sígaunakelling
»
07.11.2007 23:12:15 / sexysexy
Hæhæ allir saman...já ég er á lífi... Það er allt fínt að frétta af mér, kannski fyrir utan það að ég rústaði á mér hnénu þegar við vorum að keppa í Conference, sem var fyrir 10 dögum. Ég er ekki búin að fara í myndatöku en læknirinn telur að þetta sé liðþófinn og innra liðbandið. Ég er ekki búin að fara í myndatöku því að skólinn var að breyta reglunum með tryggingarnar og núna borga þeir ekki neitt fyrir mann, heldur verða tryggingarnar á Íslandi að covera mig og það er að taka heila eilífð. Ég vona að þetta sé að fara að koma því að ég get ekki labbað svo að ég er á hækjum og omg hvað ég er að verða þreytt í höndunum. Eina góða við þetta er að ég fæ þokkalegar byssur eftir þetta allt saman! Svo tekur örugglega við aðgerð en ég verð vonandi orðin góð áður en ég fer heim um jólin. Það er búið að vera mikið að gera í skólanum og boltanum en núna er tímabilið í boltanum búið þannig að nú getur maður einbeitt sér að skólanum. Það verður samt nice um Thanksgiving þegar ég fer og hitti Þórunni í Orlando. Við ætlum að hittast þar og við fáum að vera í húsinu sem mamma hennar og pabbi eiga. Það verður mega, super gaman að hitta Þórunni  Um Halloween héldum við stelpurnar svakalegt halloween party. Það var ekkert smá skemmtilegt og klikkað party. Allir mættu í búningum og margir í mjög flottum og fríkuðum og svo var auðvitað drukkið eins og there was no tomorrow haha. Það var allt í þessu partyi keleri, ælupúkar og löggan kom og rak alla út! 
Það er allt gott að frétta af David líka. Tímabilið í körfunni byrjaði síðasta laugardag þegar þeir kepptu á móti New Orleans College og David var stigahæstur með 23 stig. Maður verður nú aðeins að monta sig af honum haha... Ég setti inn myndir frá Halloween partyinu inn á Halloween ´07 svo endilega check it out homies. Ég vona að það líði ekki alveg svona langt á milli blogga hjá mér aftur, maður verður auðvitað að sinna aðdáðendum. Þangað til næst, Tinna
»
01.11.2007 15:50:22 / sexysexy
Við erum alltaf jafn duglegar í blogginu, ég mæli með að Tinna mín fari að koma með góða færslu, svo maður viti nú hvað stelpan er að bralla, eru ekki allir sammála mér í því??? Annars var ég að klára tveggja vikna vettfangsnám í Grandaskóla í fyrradag. Ég var að kenna í Grandaskóla íþróttir og sund með Bjarney og svo fórum við einng í nokkra enskutíma. Við eigum svo að skila skýrslu um vettfangsnámið en skýrslunni var þetta árið breytt í heimasíðu svo þið getið kíkt á hvað ég er búin að vera að bralla síðustu vikur á síðunni: blog.central.is/bjarneyhrund Síðan verður maður að vera duglegur núna, ég er að fara í lokapróf í líffærafræði á mánudaginn og það eru allir að drepast úr stressi þar á meðal ég. Það er ótrúlega fyndið að þegar ég verð svona stressuð fyrir próf þá hvetur það mig ekki til að læra heldur fer ég að gera eitthvað allt annað eins og í fyrradag þá þreif ég alla íbúðina. En það er eins gott að maður nái þessu helvíti Kveðja næstum líffærafræðingurinn Hrund
»
11.10.2007 18:25:32 / sexysexy
Jæja ég ákvað eftir miklar vangaveltur að lita mig dökkhærða fyrir cirka 3 vikum, og hérna er útkomam, hvernig líst ykkur á Kannski verður maður einhvern tíman tekin alvarlega héðan í frá Hérna eru Sigga, ég og Ástdís í nýju fínu íbúðinni hans Stebba á Klapparstígnum
Annars er bara allt gott að frétta, alltof mikið að gera í skólanum. Ég er að fara í 2 vikna vettfangsnám í Grandaskóla í næstu viku og vonandi fáum við líka aðeins að kenna í gamla Agaskólanum okkar. Síðan er lokapróf í Líffærafræði strax eftir vettfangsnámið sem er alls ekki að gera sig en það er víst ekki hægt að breyta því þó við höfum reynt að fá því seinkað. Ég vaknaði klukan 5:30 í morgun, dreif mig í æfingafötin, brunaði á Selfoss ásamt Stínu og Guðrúnu bekkjarsystrum mínum því við vorum með sundleikfimitíma klukkan 6:45. Við vorum allar frekar þreyttar en svo lagaðist það nú alveg þegar maður fór að hoppa og sparka og leiðbeina konunum í lauginni. Við vorum voðalega atvinnumannalegar með mike og allar græjur. Þetta var ótrúlega gaman og ég held að fínu konurnar í sundhöll Selfossar hafi bara verið ánægðar með okkur Núna þarf maður svo bara að vera duglegur að læra og reyna að hafa hemil á krökkunum í vesturbænum, hlakka bara til Ég setti inn nokkrar djammmyndir inná djamm sept Heyrumst.... Kveðja Hrund P.S. er að fara taka þátt í 10 km powerade hlaupi í kvöld Vona að ég villist ekki í myrkrinu í Árbænum
»
25.09.2007 03:15:21 / sexysexy
Jæja jæja elsku dúllurassarnir mínir...I am back! Það er svo mikið búið að gerast...sjæse. Ég er komin aftur til Bama haha...vona að allir hafa tekið eftir því! Hrund og Jónsi komu til mín og Hrund sagði frábærlega frá í síðustu færslu. Það var alveg frábært að hafa þau. Svo voru Bjarmi og Gussi hjá mér í síðustu viku og það var alveg awesome. Við gerðum margt og mikið og strákarnir náðu að versla sér ýmislegt, tana sig aðeins og bæta metið í að skalla á milli í lauginni (20) Við fórum líka á Auburn fótboltaleik sem var alveg frábær skemmtun...war eagle!! Svo fórum við til Birmingham og versluðum svolítið mikið...Urban Outfitters var þar fremst í flokki, uss...strákarnir koma vel klæddir heim Síðan gerðum við tilraun að fara í Six Flags í Atlanta en neii, þegar við komum hafði Michael Jackson leigt garðinn fyrir krakkana sína og þar sem við erum ekki krakkar fengum við ekki að fara inn. Þá ákváðum við að fara á sædýrasafnið en neii, þá var það að loka. Ok, þá ákváðum við að fara á CocaCola safnið en það var líka lokað. Ég veit ekki alveg hvort að fólk vissi að við værum að fara að koma til A-town og þau ákveðið að loka öllu á okkur, en við þurfum ekkert að pæla í því ...þannig að þá ákváðum við að labba í Ólympíugarðinum (´96) og svo fórum við í mallið og strákarnir eyddu nokkrum dollurum. Gussi fór sáttur heim með nýtt batterí í litlu sætu tölvuna sína. Svo voru tekin nokkur bjórkvöld á þetta og sum voru fyllri en önnur Við kíktum líka á mega cool bar hérna í sveitinni sem strákarnir voru alveg að fíla og eftir stuðið þar tókum við stefnuna á klósettið heima hjá mér og þar var tekið heavy trúnó. Núna eru strákarnir "mínir" farnir og íbúðin er mjög tómleg...en hrein Ég sakna samt að koma heim eftir skóla og æfingu og hafa þá í sófanum að bíða eftir cinnmon rolls í ofninum. Ég sakna líka að fá ekki spurningu um hvenær og hvar eigum við að borða á 5 mínútna fresti haha. Váá, þeir og David gátu borðað endalaust. Ætli maður hafi ekki bara fitnað um einhver kíló á meðan þeir voru hérna því að þeir drógu mig með í vitleysuna...og váá, mamma mín, hún sendi mér svo ógeðslega mikið af nammi með strákunum. Það er nú gott að ég fái að hlaupa þetta af mér á hverjum degi! Ég setti inn myndir frá því að sætu strákarnir voru hérna (Gussi og Bjarmi í heimsókn) ...ég veit að allir eru spenntir að sjá  Alright, ég ætti að fara að hvíla mig...leikur í Georgia á morgun! Kysskyss, Tinna
»
Síður: 1 2 3 ... 14
|
|